EcoNordic - sambyggð varmadæla og loftskiptakerfi

Birt þann
23.11.2026
Skráðu þig á póstlistann okkar!
Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Deildu þessum fróðleiksmola

Flexit EcoNordic er lausn sem sameinar loftræstingu og loft í vatn varmadælu. Kerfið er hannað fyrir norrænar aðstæður og eykur þægindi og loftgæði og dregur úr orkunotkun heimilisins.

Á Íslandi getur Flexit EcoNordic verið áhugaverður kostur fyrir hús á köldum svæðum og svæðum þar sem framboð af heitu vatni er ekki öruggt.

‍
‍Af hverju að velja Flexit EcoNordic?
Kerfið samanstendur af fjórum hlutum sem    vinna saman:

 

Loftræsieining: Tryggir ferskt, síað og hreint loft     inn í húsið með varmaendurvinnslu sem nýtir allt að 90-95%af hitanum úr      útsogs-loftinu.
‍Varmadælueining: Öflug loft í vatn varmadæla sem nýtir     umhverfisvænan kælimiðil (CO2) og skilar afköstum allt niður í -25°C.      Engin útibúnaður er nauðsynlegur.
‍Vatnstankur: Um 200 lítra ryðfrír tankur sem     tryggir mikið magn af heitu vatni (allt að 65°C).
‍Uppsetningareining: Fyrir snyrtilega lagnatengingu og     auðvelt viðhald.

 

Með því að endurnýta varma úr     loftræsingu og nýta nýjustu varmadælutækni getur kerfið dregið úr     orkunotkun til upphitunar og fyrir neysluvatn um allt að tvo þriðju hluta     miðað við hefðbundna rafhitun.

Kerfið fjarlægir rakt og mengað     loft, veitir inn fersku síuðu lofti óháð veðurskilyrðum og dregur úr     orkutapi með varmaendurvinnslu.

Einfalt er að stilla og stýra     kerfinu með Flexit GO appinu, hvort sem er heima eða að heima. Tækniteymi Flexit aðstoðar í gegnum veflausn án endurgjalds.

 

EcoNordic er til í tveimur stærðum, WH4 og WH4 XL. XL-útgáfan er með stærri loftræsieiningu og möguleika á öflugari rafhitun til að mæta aukinni þörf í stærri rýmum.

Ventum í samstarfi við Flexit býður upp á aðstoð við að útfæra loftræstikerfi og við val á búnaði sem hentar aðstæðum og þörfum hverrar byggingar.

‍

Kynntu þér lausnina betur hér.

‍

Vandaðar lausnir & framúrskarandi þjónusta

Ventum býður upp á loftskiptakerfi fyrir íbúðarhúsnæði og minna atvinnuhúsnæði. Fyrirtækið var stofnað af Eiríki Á. Magnússyni, byggingarverkfræðingi, og Karli Sigurði Sigfússyni, rafmagnsverkfræðingi. Með áratuga reynslu í hönnun nýbygginga og stýringum, leggjum við áherslu á vandaðar lausnir og framúrskarandi þjónustu.